Hæ hæ
Jæja þá er kominn tími til
að blogga smá en ég hafði ekki þolinmæði í að blogga í sveitinni
því það tekur óra tíma að bíða eftir að síðurnar opnist þar og ég
er ekki sú sem nennir að bíða og bíða 
Við erum búin að hafa það
mjög gott í sveitinni búin að hitta fullt af fólki en það hafðist
nú ekki að hitta alla sem við ætluðum að hitta en það verður bara
næst vona bara að enginn hafi móðgast
.
Laugardaginn eftir að við
komum fórum við á Bryggjuhátíð þar var ótrúlega gott veður
ég held að ég hafi aldrey komið á Drangsnes í nánast
logni og geggjuðum hita þetta var bara fínt hjá
þeim. Um kvöldið var svo farið í afmæli hjá Söbbu
mákonu og var heljarinnar partý þar og mikið af fólki og mikið
fjör og agalega gott að borða
Sabba er bara
snillingur að henda framm veislu. Sverrir bróðir lék listir
sínar á sekkjarpípu ásamt fleirum hljóðfæraleikurum en ég verð nú
að segja að sennilega eiga að koma auðruvísi hljóð úr pípunni
en þetta var eins og lamb að jarma hehehe alveg geggjað
hann
er bara snillingur að gera svona hljóð 
Síðan var dundað við að
leggja net hingað og þangað við fengum að leggja upp á
Hrófbergsvatni og fengum við fína fiska þar og sáum tófu sem
er nú alltaf gaman.
Svo um helgina fórum við að
veiða í Selá það var bara gaman, við Björn fórum kl 7 á laugardags
morgun og löbbuðum upp að einhverjum hil sem ég veit bara ekkert
hvað heitir
ég er ekki skörp að muna þessi nöfn
en á leiðinni
upp fann ég þessi agalega flottu ber sem voru orðin full þroskuð
og girnileg og auðvita þá hlammar maður sér og tínir ég var
rétt búin að tína örfá þegar geitungur réðst á mig og í augnkrikann
og stakk mig þar og ómæ got hvað það er vont hann var mjög reiður
og hamaðist á mér þar til að ég náði að íta honum í burtu og svo
var bara að hlaupa
og það upp á móti þegar ég leit við sá ég
haug af geitungum við þúfuna sem berin voru en þeir eltu ekki eins
og í teiknimyndonum hehe, en ég bólnaði smá en það hjaðnaði þegar
líða tók á daginn. Við höfðum það að þessum hil en ekkert veiddist
svo að við fórum niður aftur og að næsta hil sem heitir
Hermannshilur og fórum að veiða þar ég toldi ekki þar lengi og
röllti mér niður með ánni en það furðulegasta var að ég veiddi bara
ekki neitt
sama hvað ég labbaði hehe á erfitt með að hanga á sama
staðnum of lengi. Fórum svo að gömlu brú og köstuðum nokru sinnum
þar en ekkert það var öruglega partý leingst upp í dal hjá fiskonum
svo að einginn var þar sem við vorum
En á sunnudeiginum
veiddist smá Björn fékk 2 og Sverrir bróðir fékk 1 en sumir mistu
helling
krakkarnir voru agalega spenntir að veiða og pabbi
hann hélst á þurru landi 
Já þetta var bara góð vika
en það er ógó gott að vera kominn heim Dísa er búin að sofa síðan
hún kom en hún var gjörsamlega búin eftir túrinn búin að vera úti
allann daginn með hinum hundonum en hún var nú ekkert mjög skítug
þegar hún fór í bað áðan en búrið var frekar ógeðslegt og sængin í
botninum fór í ruslið þegar við komum heim svo nú á hún agalega
fínt BLEIKT teppi úr RL búðinni 
Við Jóhanna skiptum á
strákum Daníel kom með okkur norður og Oddur varð eftir en hann
kemur með Sverrir og Söbbu á föstudaginn og svo fer Daníel með þeim
til baka og Kristín kom líka með okkur en hún ætlar að vera hjá
frænku og frænda. Nú líður að því að Björn fari á sjóinn en hann
fer sennilega fyrir helgi suður svo að ég og krakkarnir verðum bara
ein í kotinu en það verður nú eithver gesta gangur um helgina hjá
mér fullt að liði að koma í bæinn sem ætlar að kíkja svo það verður
gaman
En ég læt þetta duga í bili
heirumst og sjáumst
síja
P.S Jóhanna og Anna Júlía ég
er tilbúin að taka á móti ykkur hvenar sem er
